03ágúst

pirrípú

hæ ég veit ég er geðveikt pirrandi en eg er búin að skipta aftur um bloggsíðu af þvi það er svo mikið vesen að setja myndir á þessa...en nú er ég komin með fína bloggsíðu og búin að setja inn myndir frá turkey og allt!!!!

slóðin er www.123.is/claire 

enjoy
03. ágúst 2006 klukkan 19:23
Klara Steinarsdóttir
1 athugasemd
20júlí

marmaris in five days

gúd lord það eru fimm dagar þangað til við förum til marmaris! Erla og Kobbi fóru út á þriðjudaginn og ég er reyndar ekkert búin að heyra í þeim en ég er hins vegar búin að heyra frá öðrum að hitinn sé kominn upp í 40-45 °C hita! :S hjálpi mér allir heilagir...það er aðeins of mikið. Það er 17 stinga hiti hér og ég er að kjafna! Um að gera að taka með sér sólarvörn 35 og bera tvölfalt lag á...ég ætla ekki að brenna takk fyrir!

Ekki eins og forðum daga á mallorca þar sem ég sofnaði á vindsæng en það speglaðist frá henni framan í mig (lá á maganum) og ég varð öll flekkótt í framan...það var mjög töff! stelpurnar muna eflaust mjöög vel eftir því þar sem þær gerðu óspart grín að mér!! Endaði með því að Ragna klippti á mig topp til að fela það versta á enninu því það hvarflaði ekki að mér að fara á djammið svona útlítandi!! svo brann ég líka svo á bringunni að brjóstin á mér virtust hvít sem snjór...stelpurnar gerðu líka mikið grín að því og suðuðu og tuðuðu um að fá að taka mynd af brjóstunum á mér, sem ég sem betur fer gaf ekki leyfir til!! Lovísa var sérstaklega æst í að fá að taka mynd...kemur á óvart ;)

Þannig nú verður ekki tekið neina sénsa..ekki sofnað á vinsæng og ekki gleymt sér í boltaleik í sundlauginni! en gvuuuð hvað ég hlakka samt til að fara út! :D
     Ég var samt að fá að vita núna um daginn að ég er að fara að fljúga með tyrknesku flugfélagi..því við erum að fara með plús ferðum.. Mér líst nú ekkert voða vel á það ef ég á að vera hreinskilin. Í sex tíma með einhverju hátt hátt upp í lofti með einhverju sem kemur frá Tyrklandi!! og hvernig verður maturinn? herre gud...og ekkert sjónvarp! hvað á ég að gera í sex tíma??? Ég ætla bara að sofa geggjað lítið nóttina áður og reyna síðan bara að sofna í svona 3 tíma í flugvélinni...er það ekki sniðugt? djísús ég er alveg orðin smá stressuð!

en eins og ég segi alltaf.....þetta reeeeddast!
bæjj
Ps. ný könnun Öskrandi (vá hvað hann rembist)
20. júlí 2006 klukkan 17:36
Klara Steinarsdóttir
4 athugasemdir
14júlí

filipinskt prump!

hahahahahahahaha OMG ég verð að segja frá!
    Ég er í hádegishléi og við sitjum hérna þrjár í tölvustofunni og haldiði ekki að þessi filipinska (hvernig sem maður beygir það) hafi bara rekið svona hressilega við!!! hahahaha það kom bara þessi þvílíka þruma og svo bara þauðaþögn....akward!! hahahaha mig langar svo að öskra úr hlátri!!! oj svo kom þessi þvílíka eggjafýluprumpulykt að ég er alveg að kafna!!! hahahahahhaha hún hefur ætlar að lauma greyið en nei heldur betur ekki! Þetta var sko ekkert lítið prump...ég er bara hissa að svona mikil læti getið komið úr svona lítilli manneskju! guð minn góður þetta er það fyndasta sem ég hef lent í...ég hrissist alveg hérna í stólnum mínum..ég vona bara að hún sjái það ekki...hún sér það samt alveg pottþétt!! hahahahahahaha greyið konan!
   OJ það er samt svo vond lykt að ég þarf að anda með munninnum, ég get samt ekkert farið neitt því það væri allt of augljóst!...jiii minn eini, ég vona fyrir hana að hún sé með auka naríur ;) vá þetta er alveg saga til næsta bæjar!!

mig langaði bara að deila þessari prumpusögu með ykkur

ég kveð úr fýlunni :/
14. júlí 2006 klukkan 17:03
Klara Steinarsdóttir
2 athugasemdir
12júlí

bubbles..

Ég á við vandamál að stríða...ég er fíkill...bubbles fíkill !

Þegar ég var lítil þá fannst mér voða gaman að vera úti að leika og finnst reyndar enn! Ég skildi aldrei hvernig bróðir minn nennti að hanga inni í tölvunni alla daga á meðan það var sól úti..það var sama hvað ég reyndi ég fékk hann aldrei til að koma út að leika. Hann var (og er) háður tölvu og tölvuleikjum! Það hefur reyndar skánað með árunum og hann velur sólina fram yfir tölvuna í dag, eða það held ég alveg örugglega.
    Nú er ég komin með vott af þessari veiki. Ég ELSKA bubbles leikinn og í hvert sinn sem ég mæti í vinnu þá get ég ekki hætt að hugsa um hvað ég hlakka til að fara í bubbles í hádegishlénu...og ég er alveg í bubbles í tvo tíma stanslaust! ég er einmitt í hádegishlé núna og ég varð bara að blogga til að gera eitthvað annað því ég var farin að halda að blá kúla væri gul..svona gerist þegar maður horfir of mikið á skjáinn.

Ég stóð mig meira að segja að því í gær þegar ég var að fara að sofa að ég var að spila bubbles í huganum! Mig langaði bara mest að setjast upp og fara að spila...þetta er mjög ávanabindandi leikur því ég veit um fleiri sem hafa átt við þetta vandamál að stríða með akkurat þennan leik. ÞAð kom tímabil í skólanum þar sem ég labbaði um gangana og fram hjá tölvunum og allavega annar hver maður var í bubbles...ég varð bara að prófa! Maður festist alveg í þessu...ég segi bara hættið áður en þið byrjið! ;)

Það er alveg rosalegt hverju maður getur orðið háður...gott dæmi er Linda Þráins sem er mesti Diet Coke drykkjumaður sem ég hef kynnst, hún gæti bara ekki lifað án þess =) Það er mjög oft sem fólk verður háð gosdrykkjum og þá sérstaklega kóki en það er nú líklega koffínið sem spilar þar inn í. Ég veit um eina stelpu sem bara gat ekki byrjað daginn án þess að fá sér salthnetur!! Það fannst mér mjög skrítið! Alveg furðulegt hvað fólk venur sig á..

en jæja ég ætla ekki að drepa ykkur með einhverju bulli...er bara að þrauka þessa viku svo næstu helgi er ættarmót upp í sveit...maður er bara út á landi næstum því hverja einustu helgi !

En ég segi þetta gott í bili...farin að spila bubbles :/
pís át

12. júlí 2006 klukkan 17:12
Klara Steinarsdóttir
6 athugasemdir
11júlí

jói hvađ sofnađi ég eiginlega lengi?

Þetta lið er svo ruglað, rænir bara ömmu sína og ríður henni svo..

daginn!
eru bloggsíður eitthvað að dvína í vinsældum eða er ég bara svona óvinsæl? pottþétt bloggsíðurnar að detta úr tísku ;) En mér er svo sem sama því ég veit að þarna úti eru dyggir stuðningsmenn og aðdáendur sem kíkja á síðuna mína á hverjum degi og ég má nú ekki bregðast þeim (alveg þessum þremur)

Um helgina skellti ég mér í laxveiði með Jomma og fjölskyldunni hans og ég verð að viðurkenna að ég vissi ekkert hvað ég væri að fara út í. Ég fór stundum að veiða með pabba og mömmu þegar ég var lítil en ég hef aldrei farið í svona alvöru veiðiferð og þetta var bara með því skemmtilegra sem ég hef gert. Maður stendur alveg hátt uppi fyrir ofan ána og getur séð fiskana þaðan, svo fóru þeir og óðu í ána þar sem fiskarnir voru og biðu eftir að þeir bitu á agnið...það var mjög gaman að fylgjast með þessu. Lengst upp í sveit, alveg hljótt og heyrðist ekkert nema niðurinn í vatninu...mmm alveg eitthvað fyrir mig, sveitalubbann ;)
 Þetta er voða mikil kúnst, bæði að sjá fiskana og svo að bíða þangað til að þeir bíta á því oft bíta þeir ekkert á nema agnið sé alveg beint fyrir framan þá. Ég skildi ekkert í því fyrst hvernig þeir fóru að því að sjá þá svona langt frá en svo fór ég að komast upp á lagið með það smátt og smátt..Ég stóð síðan bara uppi og horfði á þá reyna að ná fiskunum og það var eiginlega bara mjög fyndið..að sjá fjóra fullorðna menn hlaupa eins og vitleysingar út um allt á eftir fiskum! Svo fékk ég að fara einu sinni út í ána með Jomma á meðan hann var að reyna að láta einn bíta á...ég var ekkert að veiða en það var alveg nógu gaman að fá að standa þarna út í risa á þar sem var þvílíkur hávaði í straumnum =)
      En jæja það nennir kannski enginn að lesa þetta en þetta var allavega upplifun sem ég á aldrei eftir að gleyma.
Svo kom maður bara heim á sunnudaginn og horfði á leikinn..sem var enginn smá leikur, Zidane alveg að missa sig en vonandi hefur það verið eitthvað alslæmt sem ítalinn sagði um hann því annars er þetta engan veginn réttlætanleg hegðun hjá frakkanum. Ég skil þetta ef hann hefur sagt eitthvað ljótt um mömmu hans..þá hefði ég alveg gert það sama, en ekki ef þetta er bara eitthvað "þú ert auli"...Ég hélt samt sem áður með Frökkum og fannst mjög pirrandi að sjá Ítali fagna..! En það þýðir ekki að gráta það núna...
Akkurat tvær vikur í Tyrkland og bara átta vinnudagar eftir :D veiii
Ef einhver veit um einhverja góða og skemmtilega vinnu fyrir mig í sumar þá má hann endilega láta mig vita :)

Já og svo breytti ég útlitinu aftur af því það voru alveg tveir sem sögðu skoðun sína...að þeim finndist þessi flottari....nema jommi auðvitað en hann er ekki tekinn með því hann veit ekki neitt ;)
11. júlí 2006 klukkan 17:04
Klara Steinarsdóttir
3 athugasemdir
05júlí

testing

jæja eins og sjá má hafa verið gerðar nokkrar útlitsbreytingar. Ef þið skrollið niður sjáiði ýmislegt nýtt eins og t.d. könnun sem er alltaf svolítið skemmtilegt krydd í lífið. Svo er kominn heimsóknateljari sem sýnir hvað ég er geðveikt vinsæl.
Svo auðvitað útlitsþemað..það er öðruvísi líka. Mér finnst þetta eitthvað svo stórt allt saman..miklu breiðara einhvernveginn.

En nú er komið að ykkur lesendur góðir..hvort finnst ykkur flottara og umfram allt hvort er þægilegra að lesa/skoða? Þessi eða gamla?
Endilega segið skoðun ykkar í komment ;)

Svo ætla ég nú líka að reyna að vera duglegri í að setja inn myndir..það gengur samt eitthvað brösulega fyrir sig...en ég mun ekki gefast upp!

baráttukveðjur
05. júlí 2006 klukkan 17:18
Klara Steinarsdóttir
3 athugasemdir
03júlí

allt er svo međ öllu illt ađ alltaf bođar eitthvađ vont.

Vitiði hvað mér finnst mest pirrandi.
 
Þegar ég er búin að vera löt, þá t.d. við að
læra þegar ég var í skóla, taka til heima hjá mömmu, eða hreyfa mig, þá kemur oft það tímabil þar sem hugur og líkami segir "hingað og ekki lengra". Þá finn ég loksins fyrir metnaði og vilja til að gera eitthvað í mínum málum og byrja að skipuleggja á fullu. Þá hugsaði ég t.d. þegar ég var í skóla ; Ok, þegar ég er búin í skólanum í dag þá ætla ég að fara heim, fá mér að borða, hvíla mig og endurnæra í kannski ca hálftíma og fara svo og læra í svona tvo klukkutíma.
 
En undanteknigarlaust klúðruðust þessi skipulög mín...vegna utanaðkomandi áhrifa. Oftar en ekki þá frá yndislegu móður minni sem var ekki ánægð með umgengi heima fyrir og það klikkaði ekki að akkurat um og yfir þessa tvo klukkutíma sem ég ætlaði að læra þá sagði hún mér að taka til. Og ef ég sagði "já en ég ætlaði að læra" þá fékk ég "jájá NÚNA ætlarðu að læra, akkurat þegar ég segi að þú eigir að taka til, haaaa en sú tilviljun" Konustráið gat hinsvegar auðvitað engan veginn vitað af þessum snilldar skipulagsplönum mínum þannig hvers átti hún að gjalda.

Boðskapurinn með þessari sögu er hins vegar sá að heimurinn er á móti mér. 
    Nýverið ákvað ég að nú skyldi ég vera dugleg og labba alltaf í og úr vinnu, svona til að fá smá hreyfingu. Ég er alltaf í hlíðunum hjá Jomma og vinn í íslenskri erfðagreiningu þannig þetta er ekki langt að fara. Eftir að ég var búin að labba þrisvar í og úr vinnu (s.s. 6 ferðir) þá sá ég að ég myndi vera meira en helmingi fljótari að hjóla. Hjólafólkið brunaði alveg fram hjá mér á milljón (þetta er nenfilega svo bein leið, engar brekkur sem hindra mann) og ég var eiginlega bara geðveikt pirruð þegar ég sá hvað það var komið langt á undan mér og ég var bara búin að taka tvö skref! 
    Það munar það miklu að maður er svona 7 mínútur að hjóla á móti 20 mínútna göngu. Þar sem ég á ekkert hjól hringdi ég í litlu systur og tók af henni (hjóla)æskuna. Hún hjólar hvort eð er svo sjaldan.

Fyrsti hjóladagurinn var svo í morgun.
Ég hjólaði í fimm mínútur. Stoppaði við stóra umferðargötu á rauðum kalli. Þegar tók af stað á ný þá datt keðjan af og ég á miðri götu, fullt af bílum á rauðu ljósi og allir að horfa á mig. Ég hélt kúlinu náði einhvernveginn að hjóla í hinn kantinn og lagði svo hjólinu þar til að athuga stöðu mála. Staðan var; engin keðja. Ég leit við í sakleysi mínu og þar lá keðjan...ennþá úti á umferðargötunni. Ég mátti labba aftur út á risa umferðargötuna, fyrir framan bílana sem enn voru stopp á rauðu ljósi, ná í keðjuna sem var slitin, og teyma hjólið rest.

heimurinn er á móti mér og mín kenning er sú að maður er öruggari ef maður er bara latur.
03. júlí 2006 klukkan 21:23
Klara Steinarsdóttir
2 athugasemdir
27júní

lesefni fyrir ykkur ţarna úti sem hafiđ ekkert ađ gera eins og ég

Vinnuvika hafin á ný, það er þriðjudagur, klukkan er 14:49 og ég er búin í vinnunni í dag...thank god. Ég hélt á tímabili að ég myndi deyja úr þreytu, hefði getað sofnað standandi ! Ég, Jommi og Jón fórum að ná í Óskar á flugvöllinn í gær um miðnætti og litlar stelpur eins og ég eiga að vera sofnaðar um 11 svo þær geti vaknað kl 8 í vinnu...       ok var að lesa yfir þetta og oj hvað þetta er leiðinlegt blogg...

Þannig að öðru! Á föstudaginn fórum ég og jommi út að borða á Ítalíu og pöntuðum okkur sitthvorn pastaskammtinn sem voru nógu matmiklir fyrir 16 manns..kláruðum þetta ekki næstum því! Og ekki má nú gleyma að ég fór líka í smáralind og keypti mér föt í fyrsta skipti í laaangan tíma...eftir mikið suð og tuð náði ég að draga Jomma með mér (eins og sjá má hangi ég frekar mikið með dúdda en það fer að koma að öðrum sögupersónum ef þið eruð búin að fá leið á honum)  allavega..hann var ekkert alveg á því að koma með mér að versla...fyndið hvað allir strákar hræðast þetta að fara með stelpum að verlsa! nema hvað...ég var varla komin út úr fyrsta mátunarklefanum þegar ég sé Jomma með poka í hönd, búinn að kaupa sér jakka og húfu! honum leiddist þetta ekkert ;)

Ég fann mér buxur og bol og helsta ástæðan fyrir innkaupunum var sú að kvöldið eftir var á dagskránni djamm með Rögnu, Höllu, Fanney, Lindu og Lovísu a.k.a. www.blog.central.is/feimur  Við höfum ekki djammað saman í langan tíma og ákváðum að skella okkur í afmæli til Örnu sem hún hélt á Pravda ásamt fleirum. Við byruðum heima hjá Höllu þar sem við byrjuðum að sötra og eins og von er vís fylgir því ákaflega skrautlegt og skemmtilegt spjall...eeeen ég fer ekkert nánar út í það, margar trúnaðarupplýsingar þar á ferð ;) Auðvitað enduðum við á því að taka nokkur spor á stofugólfinu hjá Gerði og Nonna sem hefur ófáum sinnum verið misnotað af pinnahælum sem og allskonar hælum í gegnum tíðina (gólfið þá, ekki Nonni) dansgólfið einkenndist af ógleymanlegum tjáningardansi Lovísu við lagið Turn around "nei Klara, það er ekki toal eclipse heldur Turn around" haha ...og okkar víðfræga hópdansi við lagið If you were a woman (and I was a man) með tilheyrandi líkamstilþrifum en Lovísa er einmitt höfundur þess dans líka og hefur blessunarlega dreift danshæfileikum sínum á meðal okkar! ...hvernig er ég nú farin að tala..ég get ekkert gert að þessu, þetta kemur bara!
       Svo skelltum við okkur á Pravda þar sem Fanney var bílstjóri og Lovísa yfirfarþegi því hún er minnst..sættu þig bara við þetta Lolla ;) Þegar við komum út úr bilnum átti sér stað ansi..já skemmtilegt gæti verið orðið en einnig vandræðilegt..en höldum okkur bara við skemmtilegt.
 Það var þannig að hún Linda ætlaði með góðsemi sinni að dusta rykið af rassinum mínum sem hafði komið á buxurnar eftir að ég straukst utan í bílinn og segir "ég er ekki að búa til ástæðu til að káfa á þér Klara mín" Ég sagði að auðvitað væri hún að því og þá fór hún í gríni að dusta af bolnum mínum líka, á brjóstastað, nema það fór ekki betur en svo að hún kippir niður um mig bolnum..ég i hlýralausum bol og engum brjóstarhaldara. Okkur fannst þetta voða hlægilegt þangað til við sáum mann í nokkura metra fjarlægð brosandi út að eyrum...þá fyrst sprungum við úr hlátri !!! Linda perri...

Á pravda var mjög skemmtilegt, þar spjölluðum við ennþá meira um heima og geima sem einnig eru trúnaðarupplýsingar en svo ákváðum við að nú væri kominn tími á dans og eins og svo oft áður þustum við út á tómt dansgólfið og fyrr en varði var dansgólfið fullt. Ég, Lovísa og Ragna héldum síðan á Prikið og svo Barinn og fengum okkur sæti þar...við fengum okkur líka ógeðslegasta staup sem ég hef smakkað eða rússneskur kókaín...Lovísa, hvað varstu að spá!?! bjakk! Ég fékk líka alveg að finna fyrir þvi daginn eftir...úff :( En það er ekkert gaman að tala um svoleiðis daga!

Næsta helgi er svo bara fyrsta helgin í júlí, engin útilega hér á bæ..bara heima að slappa af:) En þó það sé hallærislegt að biðja þá megiði alveg vera dugleg að skrifa komment því ég er að verða uppiskroppa með lesefni á netinu í vinnunni og þá er alltaf gaman að skoða komment...þá lofa ég líka að vera duglegri að blogga :) bless á meðan

ps. ég tók víst nokkrar myndir um kvöldið en þær verða bara að koma seinna inn =)

27. júní 2006 klukkan 21:02
Klara Steinarsdóttir
7 athugasemdir
21júní

update

Guðrún Þuríður...

Jæja..ég er loksins búin að jafna mig á veikindunum en ég fékk svona líka hálsbólgu, bara eins og að kyngja 10 rakvélarblöðum í einu..hver elskar það ekki. Svo var ég víst líka með smá hita og eitthvað..mjög óþægilegt að leggjast svona í volæði þegar maður er nýbyrjaður í nýrri vinnu! Ég er einmitt í vinnunni í þessum töluðu orðum, í hádegishléi með konunum.
     Fyndið að fylgjast með gömlum konum í tölvu, þær kunna EKKI NETT...ein konan skildi ekkert afhverju hún komst ekki inn í tölvuna sína, þá var hún með passwordið sem tölustafi og var með num lock á. Svo lagaði ég það fyrir hana og það var litið á mig eins og ég væri Bill Gates..bara vaaaá hvað þú ert klár! Ég var ekkert að upplýsa þær um að ég hafi bara ýtt á einn takka ;) í gær eyddi ég korteri í að setja símanúmar inn á gms síma einnar konunnar af því hún kunni það ekki...hún var búin að skrifa öll númerin niður á fullt af blöðum, þetta var alveg bók! hahaha mér fannst það mjög fyndið!

En það hefur lítið á daga mína drifið held ég, allavega ekkert sem er frásögu færandi. Um helgina kíktum ég og Jommi í húsasmiðjupartý af því frekjan ég heimtaði að fara út eftir að hafa legið í bælinu í viku, en þetta var nú ekki merkilegt partý..allt krakkar nýskriðnir úr grunnskóla, fædd árið 1990, mér leið hálf illa..enda stoppuðum við ekki lengi. Svo fattaði að ég byrjaði líka 16 ára smástelpa að vinna í húsasmiðjunni, en þá var ég líka langyngst...nú eru þetta allt bara smábörn sem drekka mikinn bjór. Svo kíktum við í bíó á She´s the man sem er bara alveg ágætis afþreying...smá vella eins og allar amerískar bíómyndir, Jomma til mikillar gleði ;) en svo er það bara Turkey eftir mánuð!!! haaa Erla og Kobbi!! þetta líður hratt...veii ég hlakka svo til :D

En stelpur mínar ef þið lesið þetta þá verðum við að fara að skipuleggja hitting! Þetta gengur ekki lengur, gera eitthvað skemmtilegt...hvað varð um sumarbústaðinn Fanney? ;)

Jæja ég er hætt..pís át
21. júní 2006 klukkan 17:04
Klara Steinarsdóttir
5 athugasemdir
15júní

tjékk it !

15. júní 2006 klukkan 17:33
Klara Steinarsdóttir
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

hver er claire?

ég er stelpa og kem ađallega úr
Grafarvoginum góđa.
tvítugsaldurinn nálgast (eins og) óđfluga
ég á marga góđa vini og vinkonur
annađ eru óţarfa upplýsingar

Auglýsing

Könnun

hvernig ţekkirđu mig?

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...